Leiðtogafærni hefst á innra ástandi
Stjórnaðu ástandi þínu, skapaðu jafnvægi í taugakerfinu og opnaðu hjartað, til að styrkja hugsun, þrautseigju og hafa jákvæð áhrif í kringum þig
Hver er ég?
Ég er sálfræðingur með doktor í lífeðlislegri sálfræði.
Ég kenni leiðtogum, teymum og einstaklingum að leiða með taugakerfi í jafnvægi og opnu hjarta, að byggja upp innri stöðugleika sem eykur skýra hugsun, tilfinningalegt jafnvægi, þrautseigju og mannlega tengingu, jafnvel undir álagi. Þegar við lærum að hafa áhrif á eigið lífeðlislegt ástand bætum við ekki aðeins eigin líðan og frammistöðu, heldur höfum við áhrif á tilfinningar og lífeðlisfræði annarra í kringum okkur.
Vinna mín byggir á rannsóknum úr lífeðlislegri sálfræði og taugavísindum, og ég er virk í rannsóknum á sviði lífeðlislegrar sálfræði, með áherslu á hjartsláttarbreytileika (HRV), stjórnun taugakerfis, seiglu og hugræna frammistöðu undir álagi.
Starfsferill minn spannar klínísk störf, lýðheilsu og stefnumótun í kerfum og aðstæðum þar sem álag er raunverulegt og ákvarðanir hafa áhrif. Ég hef m.a. gegnt leiðtogahlutverki í sálfræðiþjónustu innan heilsugæslunnar, verið yfirsálfræðingur á heilbrigðisstofnun, sálfræðingur hjá íslensku lögreglunni, sérfræðingur í lýðheilsu innan heilbrigðisráðuneytisins og sérfræðingur í geðrækt hjá embætti landlæknis.
Ég miðla þessari þekkingu bæði innan fagheimsins og til almennings, meðal annars á alþjóðlegum ráðstefnum í lífeðlislegri sálfræði og í TEDx erindi.
Taktu stjórn á eigin ástandi
Ástand þitt skiptir máli. Ekki bara fyrir þig, heldur fyrir alla í kringum þig.
Ef þú vinnur með fólki, leiðir aðra, elur upp börn, styður skjólstæðinga eða vilt einfaldlega heilbrigðari sambönd, þá á þetta við þig. Þegar þú upplifir streitu, ert úr jafnvægi og orkulaus, finna aðrir það. Þegar þú finnur fyrir ró, jarðtengdingu og í tengingu, finna aðrir það líka.
Ástand þitt verður hluti af umhverfinu.
Meira um þetta hér í TEDx erindi mínu ,,Why your well-being matter to everyone around you”.
Hafðu samband
Endilega hafðu samband hér fyrir neðan ef þú hefur áhuga á að bóka fyrirlestur, fund eða heyra meira um störf mín og ég mun svara þér eins fljótt og auðið er.